Sólhóll stendur við aðalgötuna í þorpinu á
Stöðvarfirði, Fjarðarbraut 66 á einni fallegustu sjávarlóð á
Austurlandi, með Atlantshafið bókstaflega í
garðinum. Hægt er að ganga út í garð með
veiðistöng og fiska í soðið. Einstakt fyrir
þá sem vilja njóta friðsældar og nálægðar
við sjóinn.